Fjölmargir erlendir og innlendir höfundar koma á Bókmenntahátíð í ár. Alls munu tíu íslenskir höfundar taka þátt í hátíðinni og hingað til lands koma á annan tug erlendra höfunda. Erlendu höfundarnir koma víða að, frá Bretlandi, Norðurlöndunum, Indlandi, Egyptalandi, El Salvador og Þýskalandi svo eitthvað sé nefnt. Í hópnum eru Nóbelsverðlaunahafi, metsöluhöfundar og mannréttindafrömuður. Fyrst og síðast eru þarna fjölbreyttir höfundar ljóða og sagna sem hafa gefið út bækur sína á ýmsum tungumálum.
Nánari upplýsingar má finna um hvern höfund fyrir sig í undirflipum undir þessari síðu.